Hversu oft er sagt 3SH í þessari flottu samantekt?
| Sæti | Nafn keppanda | Félag | Fæð.ár | Sund | T1 | Hlaup | Lokatími |
| 1 | Hákon Hrafn Sigurðsson | 3SH | 1974 | 00:12:52/ | 00:00:59/ | 00:30:23/ | 00:44:14 |
| 2 | Birna Björnsdóttir | 3SH | 1973 | 00:12:36/ | 00:01:05/ | 00:34:37/ | 00:48:18 |
| 4 | Gylfi Örn Gylfason | 3SH | 1976 | 00:12:39/ | 00:00:59/ | 00:34:54/ | 00:48:32 |
| 6 | Finnbogi Gylfason | 3SH | 1970 | 00:13:28/ | 00:02:53/ | 00:32:47/ | 00:49:08 |
| 6 | Jórunn Jónsdóttir | 3SH | 1976 | 00:16:57/ | 00:01:35/ | 00:38:31/ | 00:57:03 |
| 14 | Sigurður Gylfason | 3SH | 1970 | 00:16:45/ | 00:01:24/ | 00:43:48/ | 01:01:57 |
Það er búið að opna fyrir skráningu í íslandsmeistaramótið í hálfum járnkarli á vef 3SH. Hægt er að nálgast allar upplýsingar um keppnina hér og hlekk í skráningarformið .

Steinn Jóhannsson þarf vart að kynna en hann var rétt í þessu að setja met í fjölda æfingadaga samfleitt án þess að taka sér hvíld!!
Kastljósið tók hann tali mánudaginn 19. desember þar sem varið var yfir stöðuna og metið rætt.
Því miður eru myndgæðin í vefvarpinu frá RUV ekki til að hrópa húrra fyrir að þessu sinni. Myndskeiðið má sjá hér
Mánuði áður eða 22. nóvember var kappinn í íþróttaþættinum 360 gráður, þann þátt má sjá hér
Þess má geta að Steinn stefnir á að taka hvíldardag 13. febrúar 2012
Kynning á þríþrautardeild Sundfélags Hafnarfjarðar – 3SH
Fimmtudaginn 24. nóvember kl. 20:00 í félagsaðstöðu Sundfélags Hafnarfjarðar í Ásvallalaug munu félagsmenn halda kynningu á þríþraut.
Steinn Jóhannsson og Kristín Laufey Steinadóttir munu halda kynningu á þríþraut. Þau munu í kynningu sinni sýna búnað sem notaður er í þríþraut, fjalla um mismunandi keppnir og hvernig sé best að æfa fyrir þríþraut. Áhersla verður lögð á umfjöllun um styttri þrautir sem henta öllum.
Einnig mun Ásdís Kristjánsdóttir segja frá IronMankeppni í Flórída en þar náði hún lágmarki fyrir heimsmeistaramótið í IronMan sem verður haldið á Kona, Hawaii á næsta ári.
Léttar veitingar í boði
Þær fréttir voru að berast fréttastofu 3SH að járndrottningin Ásdís Kristjánsdóttir hefði náð lágmarkinu fyrir heimsmeistaramótið í Ironman sem mun fara fram á Hawaii 13. október 2012 – http://ironmanworldchampionship.com/. Ásdís er búin að ganga frá skráningunni og því er þátttaka hennar staðfest. Þetta eru stórkostlegar fréttir fyrir þríþrautarsportið og raunar allt íþróttalíf á Íslandi enda ekki á hverjum degi sem Íslendingur vinnur sér inn keppnisrétt meðal þeirra allra bestu í heiminum í einni erfiðustu íþróttagrein sem til er. Til hamingju Ásdís.